![]()
Í vetur verður starf fyrir tíu til
tólf ára börn í Vonarhöfn í safnaðarheimilinu á
þriðjudögum frá kl. 17:00-18:30. Starfið
verður með svipuðu sniði og í fyrra; leikið, sungið,
föndrað, biblíuverkefni unnin, haldin pizzuveisla og
pylsukvöld og
endað með helgistund í kapellunni Stafni. Fyrsta samveran í
haust var þriðjudaginn 16. september.
![]()
Starf fyrir átta til níu ára börn
verður í Vonarhöfn í vetur og fer fram á fimmtudögum frá
kl. 17:00-18:30. Var boðið upp á
starf fyrir þennan aldurshóp í fyrsta sinn hjá okkur í
fyrravetur og var aðsókn góð. Eins og í TTT starfinu verður
ýmislegt
gert til fróðleiks og skemmtunar. Fyrsta samveran í haust var
fimmtudaginn 18. september. Séra Þórhildur Ólafs stýrir
barnastarfinu og hefur sér til aðstoðar gítarista og fjórar
stúlkur á unglingsaldri.
![]()
Fermingarstarf hefst um líkt leyti og
skólastarf fer í gang. Ungmenni fædd árið 1984 sækja
fræðslustundir í vetur sem fara
fram á mánudögum og þriðjudögum. Munu allir prestarnir
sinna starfinu í áföngum samkvæmt nýju skipulagi. Sem fyrr
munu fermingarbörn taka virkan þátt í Guðsþjónustum
mánaðarlega, sýna helgileiki og lesa ritningarorð og bænir.
Verður
öllum fermingarbörnum boðið að taka þátt í
æskulýðsfélagi kirkjunnar og tengjast sameiginlegu
æskulýðsstarfi
höfuðborgarsvæðisins og í Gullbringu og Kjósasýslu.
![]()
Á komandi hausti verður boðið upp
á mikið æskulýðsstarf. Tvö félög verða starfandi, eitt
ætlað fermingarbörnum en
annað fyrir 14-15 ára unglinga. ,,Femingarfélagið"
starfar með hefðbundnum hætti í vetur og verður það kynnt
þegar
fermingarstarfið hefst. Félagar í eldri hópnum munu m.a.
undirbúa sig fyrir ferðalag sem farið verður til
Svíþjóðar á
komandi vori og safna í ferðasjóð. Þar verða heimsóttir
unglingar í æskulýðsstarfi kirkjunnar í Gryta pastorat sem
er
söfnuður rétt norðan við Uppsali. Fólk frá þessum
söfnuði var hér í sumar í safnaðarferð undir leiðsögn
séra Þórhalls
Heimissonar en hann var áður prestur í þeim bæ.
![]()
![]()
Starfsemi barnakórsins hófst í
september og Hrönn Helgadóttir stjórnar honum líkt og
síðasta vetur. Þau börn sem
áhuga hafa á að syngja með barnakórnum geta leitað sér
upplýsinga hjá kirkjuþjónum í síma 555 1295 eða mætt á
æfingu
hjá kórnum.
![]()