Untitled
Kynning á okkur
Hópurinn
Gestabókin
Fallegu dætur okkar
Myndir birtast 3.sept
Litli unginn Yun
Díana Rós
Telma Rós og Ástrós Halla
Laufey og Kristín
Ferðalagið sjálft
Stokkhólmur: 27. ágúst
Beijing: 28. ágúst
Beijing: 29. ágúst
Beijing: 30. ágúst
Beijing: 31. ágúst
Beijing: 01. sept.
Wuhan: 02.sept.
Wuhan - BÖRNIN: 03.sept.
Wuhan: 04.sept.
Wuxue: 05.sept.
Wuhan: 06.sept.
Wuhan: 07.sept.
Beijing: 08. sept.
Beijing: 09. sept.
Beijing: 10. sept.
Heimferð: 11. sept.
Annað
Undirbúningurinn
Ferðadrögin frá BLAS
Bækur og DVD
Stjörnuspeki

Klukkan í Beijing

 
 
   
  Kínahópur 16

Ágúst-sept. 2007
2005-2007

Við erum Kínahópur 16 á leiðinni til Kína að ná í börnin okkar. Biðin hefur verið löng og strembin en upphaflega vonuðum við að við færum út í ágúst eða í síðasta lagi í september 2006. Þegar það rættist ekki vonuðum við af öllu hjarta að við færum út um jólin 2006. En góðir hlutir gerast hægt og loksins er komið að þessu, næstum því 12 mánuðum síðar en vonir stóðu til.

Þessi síða á að halda utan um ferðalagið okkar og er jafnframt kynning á hópnum okkar en í honum eru alls 29 manns á útleiðinni en 8 fleiri á heimleiðinni. Við förum til Beijing og þaðan fljúgum við síðan til héraðsins Húbei til borgarinnar Wuhan. Dætur okkar koma allar af sama barnaheimili í borginni Wuxue sem stendur við stórfljótið Yangtse.

Myndin hér að ofan vísar í gamla þjóðtrú í Kína en í henni segir að rauður þráður tengi elskendur saman frá fæðingu og ekkert muni koma í veg fyrir að þau nái saman. Þessi þjóðsaga hefur verið yfirfærð á fólk sem ættleiðir börn frá Kína og segir trúin að þegar barn fæðist sé rauður þráður sem tengi það við fólkið sem er mikilvægt í lífi þeirra. Eftir því sem barnið eldist styttist þráðurinn uns barnið sameinast foreldrum sínum. Þetta er falleg saga og á myndinni stendur stúlkan á Kínamúrnum með rauða þráðinn í höndunum og togar til sín þá sem verið er að sameina.

 

© 2006 - 2007 Lestat