Untitled
Til baka
 
 
 
 
  Hópurinn okkar
Velkomin

Fólkið í hópi 16

Við erum átta fjölskyldur á leið til Kína í mikla ævintýraferð. Við leggjum flest af stað 27. ágúst til Stokkhólms en ein fjölskylda fer þó aðeins fyrr. Saman förum við þó öll í flugið til Beijing að kvöldi 27. ágúst.

 Ferðalangarnir fræknu eru:
Anna Kristín og Haukur sem eiga bara gullfiska en þeir verða skildir eftir heima
Sigrún og Hemmi sem eiga hvort annað en enga gullfiska
Heiða og Jón Óskar sem eiga Telmu Rós 7 ára
Snjólaug og Ragnar eiga Einar Tudorel-Nicu tíu ára og Önnu Zhu 4 ára
Pálína og Jökull eiga Laufeyju 5 ára
Ágústína og Kári eiga Jónu Maríu 9 ára
Ásta og Steini eiga Köthu Aþenu Guðnýju 5 ára
Sarah og Víkingur eiga Daníel Smára 10 ára

Síðan verða í för með okkur fullt af ömmum og öfum: Gísli og Laufey eru afi og amma Laufeyjar. Díana og Þorleifur eru amma og afi Telmu Rósar. Smári og Steinunn eru afi og amma Daniels.

Þetta er fyrsta hópmyndin okkar og hún var tekin í janúar 2006 en á hana vantar Einar Tudorel-Nicu og Jónu Maríu (og ömmur og afa).

Næsta hópmynd var tekin 11. ágúst 2007 og er af tilvonandi foreldrunum nema á hana vantar Kára (Molinn skaut sér inn á myndina í stað Kára)

 

Ýmsar fjölskyldumyndir

Snjólaug, Ragnar, Einar og Anna Zhu:

Anna og Einar:

Jökull, Pálína og Laufey á "fæðingardaginn"

Anna og Haukur bíða eftir upplýsingum um Yun

 

 
© 2006 - 2007 Lestat