
Kínversku stjörnumerkin
Austurlensk
stjörnuspeki er nokkuð ólík þeirri sem við þekkjum best. Í henni eru
árin nefnd eftir ákveðnum dýrategundum sem eru 12 talsins. Hver dýrategund
nær yfir heilt ár sem byrjar samkvæmt austurlensku tímatali á bilinu
seinnipartinn í janúar fram í byrjun febrúar. Þannig fylgir sá sem fæðist í
byrjun janúar árinu á undan.
Samkvæmt sögunni
bauð Búddha öllum dýrunum á jörðinni til sín en einungis 12 svöruðu kalli
hans: Rottan, nautið, tígrisdýrið, hérinn, drekinn, snákurinn, hesturinn,
geitin, apinn, haninn, hundurinn og svínið. Til þess að þakka þeim nefndi
hann ár eftir hverju þeirra og bjó þannig til dýrahringinn. Dýrin voru nefnd
eftir þeirri röð sem þau svöruðu kallinu og var þannig rottan fyrsta dýrið
til að mæta, síðan nautið, þá tígrisdýrið og svo framvegis. Hver sem fæðist
á ári ákveðins dýrs fær eiginleika þess í vöggugjöf. Öll dýrin eru
jafnrétthá en þó er ákveðin lukka sem fylgir ákveðnum árum og því er talið
betra að fæðast á þeim heldur en öðrum.
En það
er ekki nóg með að árin séu kennd við ákveðnar dýrategundir heldur er hvert
ár tengt eftirfarandi efnum: Tré, eldur, jörð, málmur eða vatn. Og
hefur það áhrif á eiginleika hvers árs.
Árið 2005 var ár
hanans og árið 2006 var ár hundsins. Sex dætranna eru fæddar á ári hundsins
og tvær á ári hanans:
Ár hanans:
9 Febrúar
2005 -
28 Janúar
2006:
Viðar hani
Ár hundsins:
29 Janúar
2006 -
17 Febrúar
2007:
Eld hundur
Haninn 2005
Hann er mikil
félagsvera og þrífst á athygli annarra.
Hann er öruggur með sig og með ákveðna fullkomnunaráráttu.
Í veislum er hann hrókur alls fagnaðar og nýtur þess að vera í sviðsljósinu.
Hann fylgir eigin eðlishvötum frekar en hlusta á ráð annarra, kann ekki að
ljúga og leggur því yfirleitt öll spilin á borðið. Hann er óþreytandi þegar
kemur að því að skila verkefnum og klárar alltaf það sem hann tekur sér
fyrir hendur. Hann á það til að vera sérvitur og býr yfir þeirri náttúru að
trúa því að hafi alltaf rétt fyrir sér
og hefur það líka oftast. Hann gefur þau skilaboð að hann sé til í allt en
undir niðri er hann lítill í sér og þarf stöðugt á uppörvun. Haninn getur
verið sjálfselskur og næstum því uppáþrengjandi á köflum en hann er alltaf
spennandi og getur átt til mikið hugrekki.
Hundurinn 2006
Talið er að fólk sem er fætt í ári hundsins
hafi margar af bestu hliðum mannlegrar náttúru: Sterk réttlætiskennd,
heiðarleiki og ýti undir sjálfstraust annars fólks með því að kunna að þegja
yfir leyndarmálum. En þeir geta líka verið þrjóskir, sjálfselskir og
hálfgerðir eiginhagsmunaseggir. Hundurinn hefur lítinn áhuga fyrir peningum
en virðist þó alltaf eiga nóg af þeim. Hundurinn er greindur, áreiðanlegur
og með sterka réttlætiskennd. Hann er tryggur og tilbúinn að berjast fyrir
góðan málstað. Hann er góður hlustandi og því alltaf tilbúinn að hlusta á
vandamál vina sinna.