Undirbúningur!
Við erum átta fjölskyldur á leið til Kína að sækja börnin okkar sem bíða þar eftir okkur. Hópurinn sem ætlar saman út, samanstendur af tilvonandi foreldrum, tilvonandi systkinum, tilvonandi móðursystur og tilvonandi ömmu og afa. RISAstór hópur með ólíkar þarfir og langanir en öll á leið að því sama… átta litlum börnum sem bíða þar eftir okkur!
Undirbúningurinn er löngu hafinn og það sem enskumælandi kalla "nesting" eða hreiðurgerð. Við erum í henni alveg á fullu: Sumir kaupa kjóla alveg eins og þeir haldi að aldrei verði aftur seldir kjólar á Íslandi, aðrir kaupa skó og allir eru farnir að velta fyrir sér kerrum og mjaðmapokum til að bera börnin; það er sem sagt allt að gerast.
Fyrsti hittingur 21. janúar 2006
Heima hjá Pálínu, Jökli og Laufeyju. Pálína var að vísu
pikkföst í kaupmannahöfn en Jökull snaraði fram Gúllassúpu rétt eins
og hann væri vanur stórveitingahúsrekstri! Pálína birtist svo um leið
og Flugleiðum fannst við hæfi að senda hana heim.
Allir mættu þetta fyrsta skipti nema Jóna María var fjarri góðu gamni því hún kaus að hitta vinkonu sína enda hafði hún aldrei hitt þetta skemmtilega fólk og vissi ekki af hverju hún var að missa. Einar stoppaði ekki lengi því hann fór í afmæli hjá frænda sínum. Hins vegar var mikil gleði hjá litlu dömunum sem renndu sér í rennibraut og hlupu í hringi eins og þeim væri borgað fyrir það. Daniel fylgdist með.
Fullorðna fólkið fór hægt af stað, en þegar tók að síga á seinni hlutann var hópurinn byrjaður að hristast saman og farinn að spjalla um það sem væntanlega tekur við í haust. Snjólaug og Ragnar voru með myndasýningu frá fyrri Kínaferð og við hin sátum agndofa undir og þorðum varla að tala til að missa örugglega ekki af neinu.
Á þessum tímapunkti erum við viss um að fara til Kína í september.
Nánar tiltekið 15. september. Okkur finnst það henta vel fyrir
kínaferð
04.mars 2006
Ágústína, Kári og Jóna María buðu í næsta hitting.
Fjarri góðu gamni voru Ásta, Steini og Katha Aþena. Allir aðrir voru
mættir.
Veitingar voru í boði húsráðenda og þegar við vorum búin að belgja
okkur út á brauði og kaffi var tekið við að ræða ferðalagið mikla.
Kári var vel undirbúinn og var búin að setja upp flotta markmiðsáætlun
fyrir okkur og aðgerðaplan fyrir ferðina. Planið miðast við að förum
til Kína í september. Á aðgerðaplaninu var meðal annars plön um að
hittast ca einu sinni í mánuði (eða á eins og hálfsmánaðarfresti) þar
til við færum út. Einnig var á planinu að búa til sameiginlega
heimasíðu fyrir hópinn og frekjaðist Anna Kristín til að taka það að
sér. Að vísu voru ekki mörg önnur boð
Hópurinn varð hálfdofinn eftir aðgerðaplanið mikla enda nær það 10 ár fram í tímann og það tók að renna upp fyrir hópnum að þetta væri nú aldeilis ferðalagið sem við værum að leggja af stað í.
Ákveðið var að hittast næst 2.apríl.
02. apríl 2006
Að þessu sinni hittumst við heima hjá Snjólaugu,
Ragnari, Einari og Önnu Zhu. Tvær fjölskyldur voru fjarri;
Ásta, Steini og Katha Aþena; Heiða, Jón Óskar og Telma: þeirra var
auðvitað sárt saknað.
Krakkarnir virðast vera að hristast ágætlega saman. Strákarnir dunda sér í strákatölvuleikjum á meðan Jóna María er búin að eignast tvo aðdáendur sem elta hana með stjörnur í augunum hvert sem hún fer.
Við hin, fengum okkur að borða (hvað annað) og ræddum tilvonandi ferð. Snjólaug og Ragnar héldu fyrir okkur aðra sýningu: Að þessu sinni á ýmsum munum frá Kína. Mjög skemmtilegt og fræðandi. Við sjáum fram á að þurfa að tala við gámafyrirtæki og fá einn slíkan til að senda varning heim (shop till you drop).
Miklar umræður urðu um kerrur og hvernig dekk væri best að hafa undir þeim. Mjög spennandi og eins gott að hafa tækniatriðin á hreinu áður en kemur að heimkomu litlu prinsessana okkar (eða prinsanna). Sumir voru búnir að fara að máta og sögðu þetta ótrúlega góða tilfinningu að djöflast um búðina og hafa leyfi til að vera með skoðun á þessum hlutum.. ekki sem áhorfandi heldur sem væntanlegur eigandi að svona farartæki.
Hópurinn er búinn að kaupa mikið magn af myndum um Kína, barnabókum
um ættleiðingar og aðskilnað, ferðabækur um Bejing og
tungumælakennslubækur og diska. Eftir ferðina getum við pottþétt sett
upp verslun
Á þessum tímapunkti virðist ekki lengur raunhæft að stefna á september ferð. Tíminn frá því umsókn fer út og þar til upplýsingar berast um börnin hefur verið að lengjast að undanförnu. Stefnir allt í það að biðin verði 12 mánuðir. Og þetta verði því jólaferð. Við horfum samt ennþá á september og ætlum ekki að gefa það upp fyrr en við þurfum. En kalt mat er samt að við fáum ekki upplýsingar fyrr en í fyrsta lagi í nóvember. Vonandi verða betri fréttir næst þegar við hittumst sem er í maí!
13.maí 2006
Þá var komið að því að hittast í Þorlákshöfn hjá Heiðu,
Jóni og Telmu Rós. Þau buðu okkur í grill á laugardagshádegi og nutu
aðstoðar Sigrúnar og Hemma við undirbúin. Að vísu undirbjuggu þau sig
heldur betur vel því þau tóku húsið í gegn, lögðu flísar og nýtt
parket enda dugir ekkert minna! Því miður gátu ekki allir mætt; Ásta,
Steini og Katha Aþena voru á fullu í sauðburði og Sarah, Víkingur og
Daníel voru fjarri góðu gamni. Þeirra var auðvitað sárt saknað.
Grillið var frábært. Nokkrir hentu sér ásamt börnunum í heita pottinn og skemmtu sér hið besta við splass og hopp. Enda var veðrið hreint út sagt frábært og allt lagðist því á eitt að gera þetta að frábærum degi.
Við erum búin að kaupa þvílíkt mikið magn af bókum og DVD efni að við getum auðveldlega sett upp flott bókasafn. Að vísu eru yfirleitt til fleiri en eitt eintak af hverju fyrir sig en er það ekki líka aðalsmerki góðs bókasafns?
Hópurinn lagðist yfir dagsetningar og bar saman slúður um gang mála
í Kína. Að því loknu sátum við hálfdösuð því við erum greinilega
ekkert á leiðinni út fyrr en í allra fyrsta lagi um áramót og mjög
líklega heldur seinna en það. Kannski ekki fyrr en í febrúar mars.
Biðin lengist frekar en hitt, en við erum samt komin með 6 mánaða
biðtíma þannig að við hljótum að vera nálgast það að vera hálfnuð
Hinsvegar getur allt gerst og við verið á leiðinni fyrr en við höldum. Þangað til höldum við bara áfram að hittast því það er auðveldara að láta sig hlakka til næsta hittings á mánaðarfresti heldur en bíða og bíða í þann óratíma sem eftir er!
2. sept.2006
Hittingur í Eyjum. Nú er svo langur tími liðinn
að það er ýmislegt farið að breytast. Nú eru fjölskyldurnar orðnar tvær
í Eyjum. Mikið stuð og mikið gaman að fara og hitta þær. Ákveðið var
að sofa í skátaheimilinu í Eyjum og njóta svo gestrisni Söruh og
Víkings. Ekki komust allir að þessu sinni sökum vinnu og annarra anna
en þeir sem komust sögðu að ferðin hefði verið hreint út sagt frábær:
Snjólaug, Ragnar og börn, Sigrún og Hemmi, Pálina, Jökull og Laufey og
Eyjafjölskyldurnar tvær.
28. okt.2006
Þá var komið að Húnavatnssýslunni hjá Ástu,
Steina og Köthu Aþenu. Þangað mættu Snjólaug, Ragnar og börn, Hemmi og
Sigrún, Jón, Heiða og Telma, Pálína og Laufey og Anna Kristín og
Molinn. Þetta var skemmtileg ferð og börnin jöskuðust með
hundana á heimlinu og skemmtu sér konunglega. Hinir fullorðnu veltu
sér upp úr Kínaferðinni og gæddu sér á kræsingum sem bornar voru
á borð. Eyjafjölskyldna og Jökuls og Hauks var sárt saknað.
Næsti hittingur er áætlaður 20. janúar 2007 hjá Önnu Kr og Hauki en í upphafi hittinga var ekki reiknað með að við næðum að hittast hjá öllum en þarna verðum við komin hringinn og eigum árs hittinga afmæli!
27. jan.2007
Áætlanir geta breyst og gera það svo sannarlega eins og þessi langa bið hefur þegar sýnt okkur. Þessi hittingur fór því fram hjá Pálínu og Jökli og var helsti tilgangurinn að æfa okkur með prjónana svo við kæmum ekki til með að svelta heilu hungri í Kína (as if - það er ekki eins og það sé ekki af nógu að taka). Prjónaæfingarnar gengu mjög vel enda ekki annað hægt þegar maður borðar mat frá einum besta Kínastað á höfuðborgarsvæðinu. Ekki gátu allir mætt en Kári var fjarverandi svo og húnverska fjölskyldan okkar. Mikil umræða fór fram um heimasíðuna og hverning við gætum skipt með okkur verkum í skrifunum þegar við verðum í Kína. Búið að setja upp bakkupp síðu sem er fyrsta síðan sem við gerðum, við ætlum að reyna að vera við öllu búin en svo gerist bara það sem gerast á. þannig er það alltaf J

