Frumræktun bengala, læður eingöngu.


Nátthaga Chica's Freyja (F3)
Fædd 18. mars 2007

Faðir: Nátthaga Shameera's Caballero   Móðir: Natthaga Sequel's Chica (F2)

Hún er með ótrúlega blettatígurslegt munstur.  Doppur og rósettur liggja lárétt og skástætt alveg eins og á forföður bengalana.  Auk þess eru ljósu hárin glitrandi í endana, með glittergenið.  Freyja er blíð en ákveðin stelpa og lætur ekki hvern sem er halda á sér.  Hún hefur ekki enn náð að gefa af sér kettlinga, því miður.

Freyja1811072.jpg (76325 bytes)

Freyja415okt2007.jpg (37949 bytes)

Freyja315okt2007.jpg (43135 bytes)

Nátthaga Xenia (F3)

Fædd 10. maí 2005

Faðir: Bridlewood's Special Effects   Móðir: Natthaga Sequel's Aethusa (F2)

2Xenia300905.jpg (222905 bytes)

3Xenia300905.jpg (278074 bytes)

4Xenia300905.jpg (145902 bytes)

5Xenia300905.jpg (204323 bytes)

Xenia ber snjógenið frá pabba sínum og gen fyrir marmaramunstri frá mömmu sinni.  Hún er þriðja kynslóð frá villta forföður sínum Taro of Bundas.  Xenia er sérstaklega ljúf í umgengni, en henni hefur ekki tekist að gefa af sér kettlinga, ekki fyrr en hún var 4 ára, en þá þurfti að taka einn fullvaxta en látinn kettling með keisara.  Við reynum aftur!

 


Nátthaga Sequel's Aethusa (F2) 

Faðir: CH. Gogees Might Be A Redneck   Móðir: Bundas Taro Sequel (F1)

Fædd 12. mars 2003

Aethusa er merkileg læða, með andlit sem er nauðlíkt andliti forföðursins, stór kringlótt augu, beinar rendur niður ennið, og marmarmunstur sem flæðir skáhallt aftur úr.  Munstrið hennar er þrílitt þar að auki, sem þýðir að hún er gefur af sér rósettudoppur ef hún er pöruð með doppóttu fressi.  Aethusa hefur fram að þessu aðeins gefið af sér einn kettling, Nátthaga Xenia.  Myndirnar sýna hvernig marmaramunstrið þroskaðist frá kettlingsaldri og til fullorðinsára.

Aethusa1jolakettir 015.jpg (111499 bytes)

Aethusa2jolakettir 016.jpg (85448 bytes)

Aethusa210903huntingm.jpg (58520 bytes)

Aethusa210903posing1m.jpg (59811 bytes)

Marblerightt17052003.jpg (30651 bytes) Marbleleftt17052003.jpg (31510 bytes)
Marbletummy.jpg (72315 bytes) Marblebackside.jpg (31580 bytes)

Bundast Taro Sequel (F1)

Fædd 29. maí 1999

Faðir: Taro of Bundas (Felix bengalensis, ALC)   Móðir: Aluren Paisley of Abundadots

Sequel2912024.jpg (29678 bytes)

Sequel2912021.jpg (27625 bytes)

Sequel2912022.jpg (35904 bytes)

Sequel2912023.jpg (20617 bytes)Egsequel1.jpg (36225 bytes)                                            

Sequel er ein fegursta læða sem ég hef nokkurs sinni átt, tignarleg og stolt stelpa.  Faðir hennar er Taro of Bundas.  Hann er ALC, tilheyrir kattategundinni Felix bengalensis sem er villtur köttur í frumskógum Austur-Asíu.   Taro kom í ræktun til Grace Lush í Kanada úr þýskum dýragarði og hefur gefið af sér margar læður, sem síðan hafa fært hans flotta útlit áfram inn í bengalræktun um allan heim.  Sequel er með sérstaklega fíngerðan feld og skýrt doppumunstur, doppur niður skottið, hvítan maga með svörtum doppum, sem keppst er við að fá fram í bengalnum.  Hún ber einnig gen fyrir marmaramunstri frá móður sinni.  Sequel er komin í frí frá kettlingastandi og lifir góðu lífi hjá mér áfram.

Föður hennar getið þið séð hér: Leopard Cat father Taro.


Kings  Queens

E-mail

HOME