Ýmsar ljúfar kettlingamyndir.
Aðsendar myndir frá ánægðum bengalkattaeigendum. Allar myndirnar eru birtar með góðfúslegu leyfi þeirra.
Nátthaga Tígur Töffari, hér myndaður sex mánaða gamall, býr hjá Ölmu Maríu og fjölskyldu hennar.
-----------------------------------------------------
Nátthaga Nina Nuez á hann Runólf. Hún er snjóbengal (seal mink snow spotted).
------------------------------------------
Nátthaga Negro Noche snjóbengal (seal sepia snow spotted) kölluð Snæja og Nátthaga Leon Llama (brown spotted) kallaður Bakír búa hjá Áslaugu, Magnúsi og dóttur þeirra.
Bakír kom á heimili þeirra nokkrum mánuðum á undan Snæju. Hér er frásögn af því hvernig þeim gekk að venjast hvort öðru: "Bakír og Snæja þrífast vel hjá okkur og hafa vakið eintóma gleði. Í fystu vorum við á nálum því fressin varð heldur geðvondur þegar littla daman kom inn á heimilið.....En að viku liðinni voru þau orðin bestu vinir og núorðið kúra þau alltaf saman og skiptast á þvottaþjónustu. "
--------------------------------------------
Nátthaga Góa (brown spotted) á hana Rakel Salóme, sem lánaði þessar myndir á síðuna.


Góa lætur hafa fyrir sér á nýju heimili samanber þessar frásagnir: "Við fjölskyldan borðuðum sviðakjamma í gær eins og sannir Íslendingar. Góa reyndi nokkrum sinnum að komast upp á matarborð og krækja sér í eitthvað matarkyns. Þegar hún sá fram á að fá ekki neitt í svanginn byrjaði hún að væla eins og stunginn grís. Eftir smástund hætti nú vællinn og það sló þögn í húsinu. Lognið á undan storminum ...... Góa hljóp upp bakið á fjölskylduföðurnum sem var nýkominn úr sturtu og var í bómullarslopp að borða sviðakjamma og meðlæti. Þegar Góa var kominn upp á öxl, stökk hún þaðan niður á borðið og dró sér sviðakjamma af fatinu. Hún varð óð og með alls kyns búkhljóð, svo góður var kjamminn. Við fengum alveg hláturskast af öllum tilþrifunum hjá henni þegar hún byrjaði að belgja sig út af kjammanum. Hún sporðrenndi bæði, auga, eyra, nefi og öllu hinu dótinu á kjammanum." Og næsta bréf:"Góa hefur það alveg frábært. Ofboðslegur fjörkálfur og hefur gaman af því leika og sulla í baðkari. Hún er mjög hrifin af pottum og gerði sér lítið fyrir og dró meðalstóran pott fullan af grjónagraut niður á gólf um daginn. Er hægt að skamma svona dýr með svona falleg græn augu eins og undirskálar? Ónei! Hún gefur mikið af sér og smellur vel inni fjölskylduna. Henni þykir nú best að kúra í aðventukransinum og fylgjast með því sem er að gerast úti, þannig að kransinn stefnir í það að vera heilsársskreyting!!!" Og þriðja bréf: "Góu um jólin ....... hún var ekkert svakalega hrifin af lopapeysunni sem hún fékk í jólagjöf frá einni ömmunni í fjölskyldunni ....... skiljanlega ....... en það vakti mikla kátínu hjá fjölskyldunni hins vegar .... hefur það annars mjög gott og vinsælasta leikfangið hennar er klósettpappír og fylgjast vel með gullfiskunum .........." Og fjórða bréf: "Vildi bara leyfa þér að fylgjast aðeins með henni Góu. Hún er búin að vera mjög fjörug og spræk í nýjum heimkynnum og er ofboðslega hrifin af öllum jólaskreytingunum okkar ...... Vældi svolítið fyrstu nóttina en var ofboðslega góð í nótt. Fékk gesti í gærkvöldi og bjó til túnfiskssalat handa þeim og Góa hékk í buxnaskálminni allan tímann með ég var að útbúa salatið, annars bara allt frábært hjá okkur, hún algjör rúsína og dafnar vel ......"


Góa hefur eignast góðan vin, þegar Þorri kom inn á heimili hennar, en hann vantaði nýtt heimili. Þau náðu fljótt saman og ríkir mikil sæla hjá þeim skötuhjúum.
---------------------------------------
Védís Eiríksdóttir tók að sér Nátthaga Shanti Vedika, öðru nafni Tígri, þegar hann vantaði nýtt heimili, og hann hefur svo sannarlega gert sig heimakominn, meira að segja allur garðurinn hennar Védísar er leikvöllur hans eins og þið sjáið, þar sem hann hefur klifrað upp í aspartréð!

-----------------------------------------------
Nátthaga Nino Narro er snjóbengal (seal mink snow spotted) og hann á þau Eydísi og Raymond.









