Upphafssíða

Snorri Sigfús Birgisson:

Verk fyrir einleikshljóðfæri



Verk fyrir píanó
Eos og Selena - 2006
23 íslensk þjóðlög - (2005/2006)
Helios (2003)
Hymni - (1982/1999)
Divertimento í sól - (1998)
7 Portrett - (1997/1998)
Píanókonsert - (1996)
Jarðardreki - (1988)
Píanólög fyrir byrjendur - (1984)
Æfingar - (1980/1981)
Tokkatína - (1975)


Verk fyrir klarinett
Rotundum

Verk fyrir selló
Dans

Verk fyrir flautu
Partíta


Verk fyrir gítar
Tvær gítarfantasíur

 


Efst á síðu

Verk fyrir píanó

23 íslensk þjóðlög (2005/2006).
Þetta eru útsetningar á lögum sem eru varðveitt á segulböndum í Þjóðfræðasafni
Stofnunar Árna Magnússonar.
Hægt er að hlusta á lögin (einradda og án undirleiks)
á netinu (Ísmús). Flestar útsetningarnar eru hugsaðar til flutnings á tónleikum en einnig mætti nota þær sem kennslumúsík. Fyrstu lögin eru mjög létt og ætluð byrjendum en smám saman eru gerðar meiri kröfur og síðustu útsetningarnar eru ætlaðar nokkuð langt komnum nemendum. Höfundur hefur hljóðritað lögin og hafa þau verið gefin út á geisladiski (STB CD001).

23 íslensk þjóðlög - á nótum (pdf)

Lögin heita:

1. Kálfur fjósi kúrir í.
2. Stígur hann Lalli.
3. Stígur hún við stokkinn
4. Þau sem það kunna
5. Heyrðu nú hjartans málið mitt
6. Drengurinn minn, minn
7. Reyndist engum leiðin löng
8. Farðu að sofa fyrir mig
9. Þegar ég smáu fræi í fold
10. Húfukvæði
11. Pilturinn og stúlkan
12. Magáll hvarf úr eldhúsi
13. Hann var í gær með hornin löngu
14. Þar fór Björn
15. Gimbillinn mælti
16. Öslaði gnoðin, beljaði boðinn
17. Nú er Ísafoldin frjáls
18. Kvæðið af rangláta riddaranum
19. Skúli fógeti
20. Frísakvæði
21. Ókindarkvæði
22. Gilsbakkaþula
23. Komdu til mín fyrsta kvöldið jóla

 -----------------------------------------------------------------------------------------------------------


Eos og Selena
Þetta verk var pantað af Íslandsdeild EPTA* fyrir píanókeppni sambandsins 2006.

Samkvæmt grískri goðafræði voru Eos og Selena systur. Eos var gyðja morgunroðans og Selena var mánagyðja. Þær voru báðar ástleitnar og frjósamar með afbrigðum. Selena átti 50 dætur með Endymioni og 3 dætur með Seifi. Eos, hin "árrisula rósfingraða morgungyðja", opnaði hlið himins fyrir sólinni. Hún var móðir stjarnanna og vindanna fjögurra.

Eos og Selena - allt verkið á nótum (pdf)

*Evrópusamband píanókennara

----------------------------------------------------------------------------------------------------------------


Helios
Þetta litla píanólag var samið árið 2003 að beiðni Thaliu Mayers og The Associated Board of the Royal Schools of Music í Bretlandi og gefið út í safnritinu Spectrum 4 (2005). Thalia Myers sá um útgáfuna.


----------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Æfingar (1980-1981)

Höfundur frumflutti verkið á miðnæturtónleikum 21.júní 1981. Verkið er tileinkað Hreini Friðfinnssyni.

Kveikju þessa verks er að finna í trompum Tarot-spilanna. Nokkrir kaflar heita sömu nöfnum og tilsvarandi spil,sumir titlarnir eru heimatilbúnir.

Verkið er 21 kafli að lengd. Kaflarnir heita:

I
II
III
IV
V
VI
VII
VIII
IX
X
XI
XII
XIII
XIV
XV
XVI
XVII
XVIII
XIX
XX
XXI

Sjónhverfing
Slæða
Náttúran
Keisarinn
Páfinn
Krossgötur
Lína
Línudans
Níu
Lukkuhjólið
Ljónatemjan
Sönn ást
Dauði sjónhverfingamannsins
Engillinn
Rökhyggjan
Ósigur rökhyggjunnar
Vonin
Tunglið
Gull
Trompet
Ljósálfur

Upphaf kafla I á nótum
Upphaf kafla II á nótum
Upphaf kafla III á nótum
Upphaf kafla IV á nótum
Upphaf kafla V á nótum
Upphaf kafla VI á nótum
Upphaf kafla VII á nótum
Upphaf kafla VIII á nótum
Upphaf kafla IX á nótum
Upphaf kafla X á nótum
Upphaf kafla XI á nótum
Upphaf kafla XII á nótum
Upphaf kafla XIII á nótum
Upphaf kafla XIV á nótum
Upphaf kafla XV á nótum
Upphaf kafla XVI á nótum
Upphaf kafla XVII á nótum
Upphaf kafla XVIII á nótum
Upphaf kafla XIX á nótum
Upphaf kafla XX á nótum
Upphaf kafla XXI á nótum

Æfingar fyrir píanó eru til á hljómplötu (LP): ITM - 5-06

Efst á síðu

-------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Píanólög fyrir byrjendur
25 lög í fjórum heftum.

(sjá:
Kennslumúsík)





------------------------------------------------------------------


Píanókonsert
(sjá: Hljómsveitarverk)




--------------------------------------------------------------------------------------------------------------

7 Portrett.
Þessi verk voru samin 1997 og 1998. Sérhvert portrett er sjálfstætt en á vissan hátt standa öll verkin saman og flokkurinn í heild sinni er tileinkaður Jóni Nordal.

Höfundur frumflutti Portrett nr. 2 sumarið 1997 (á Menningarnótt í Reykjavík) og Portrett nr. 1 og 3 í Gerðarsafni veturinn eftir en Portrettin í heild sinni voru flutt á Kjarvalsstöðum haustið 1998 þar sem höfundur og Halldór Ásgeirsson myndlistarmaður efndu til samstarfs. Myndverk og performansar Halldórs og píanótónlist Snorra (7 Portrett) áttu samleið í nokkrar vikur í safninu og í tengslum við samstarfið var gefinn út geisladiskur
SMK12 þar sem höfundur leikur öll Portrettin á píanó. Geisladiskinum fylgir 40 blaðsíðna Myndabók eftir Halldór.

Portrett nr.1: upphaf verksins á nótum
Portrett nr.2:
upphaf verksins á nótum
Portrett nr.3:
upphaf verksins á nótum
Portrett nr.4:
upphaf verksins á nótum
Portrett nr.5:
upphaf verksins á nótum
Portrett nr.6:
upphaf verksins á nótum
Portrett nr.7:
upphaf verksins á nótum

Höfundur lét prenta 7 Portrett árið 2001 og er bókinni dreift ókeypis. Þeir sem óska eftir að fá sent eintak af bókinni geta snúið sér til höfundar (heimilisfang, netfang og sími).

Efst á síðu

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Divertimento í sól
Þetta verk var samið 1998 og er tileinkað Þorkeli Sigurbjörnssyni sem átti sextugsafmæli 16.júlí það ár.
Verkið er í 3 stuttum köflum sem allir byggja á lögum úr íslenskum handritum sem varðveitt eru í Þjóðarbókhlöðunni. Kaflarnir eru í 3 mismundandi g-tóntegundum (g = sol (fr.)) og voru samdir á sólríkum dögum í júlí 1998 þannig að nafnið á verkinu kom af sjálfu sér.

Verkið er u.þ.b. 6 mínútur að lengd og höfundur frumflutti það í Iðnó í ágúst 1998 á Menningarnótt í Reykjavík.

Divertimento í sól - raddskrá (pdf)

Efst á síðu

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Hymni
Þetta verk var upphaflega samið fyrir strengjasveit (1982). Höfundurinn hefur gert nokkrar útsetningar á verkinu fyrir ýmsa hljóðfærahópa. Þessa útsetningu fyrir píanó gerði hann árið 1999 og frumflutti hana sama ár í Norræna Húsinu. Verkið er í 11 örstuttum köflum sem allir eru í mixólydiskri tóntegund og leiknir mjög hægt. Píanóútgáfan af Hymna er tileinkuð foreldrum tónskáldsins.

Hymni fyrir píanó - á nótum (pdf)

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Jarðardreki
Þetta verk var samið árið 1988 (á ári jarðardrekans) að beiðni Jónasar Ingimundarsonar píanóleikara sem frumflutti það sama ár á Siglufirði. Verkið sem er tileinkað Jónasi er í einum kafla og tekur u.þ.b. 6 mínútur í flutningi.

Jarðardreki - á nótum (pdf)

Efst á síðu

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Tokkatína (1975).
Verkið er stutt (ca. 4'). Það er tileinkað Snorra Sigfússyni afa tónskáldsins.
Höfundur frumflutti verkið í Norræna Húsinu 1976(?).

Tokkatína - á nótum (pdf)

Efst á síðu

-----------------------------------------------------------------------------------------------------------

Verk fyrir klarínett

 

 

Rotundum
Þetta verk var samið haustið 1978 fram í janúar árið 1979. Það er u.þ.b. 21 mín. að lengd, í einum kafla og er tileinkað Óskari Ingólfssyni klarínettleikara. Óskar frumflutti verkið í Amsterdam vorið 1979.

Nafn verksins er fengið að láni hjá alkemistum sem notuðu þetta orð stundum til að lýsa ákveðinni þéttingu eða hreinsun sem varð í tilraunaglösum þeirra. Sumir segja að það hafi ekki bara verið gullmálmur sem þeir sóttust eftir heldur hafi smátt og smátt runnið saman fyrir þeim leitin að gullgerðarformúlunni og löngunin til að skilja sinn innri mann þangað til á endanum að efnið var orðið það sama og andinn, gull hið sama og sálarfriður.



--------------------------------------------------------------------------------------------------

Efst á síðu

Verk fyrir selló



 

Dans
Í þessu verki eru 9 kaflar og er fyrsti kaflinn lang lengstur, - síðustu 8 kaflarnir (2.-9.) eru örstutt brot. Við flutning verksins byrjar sellistinn á að spila 1. kafla en ekki er nauðsynlegt að spila alla litlu kaflana, flytjandinn ræður hversu marga þeirra hann spilar og í hvaða röð. Dæmi: 1.-5.-6.-8.-7.-9.


Verkið var samið 1981/1982 og er tileinkað Noru Kornblueh sem frumflutti það í Amsterdam 1982.

Lovísa Ósk Gunnarsdóttur (dansari) og Sigurður Halldórsson (sellóleikari) hafa samið dansverk (Vision fyrir dansara og sellóleikara) sem byggir á tónverkinu Dans fyrir selló. Lovísa og Sigurður fluttu verk sitt í Borgarleikhúsinu árið 2003. Stefanía Adolfsdóttir hannaði búninga og Kári Gíslason annaðist lýsingu.

Dans - á nótum (pdf)

--------------------------------------------------------------------------------------------------


Efst á síðu

Verk fyrir flautu


Partíta

Þetta verk var samið árið 1997 og endurskoðað lítillega árið 2003. Það er tileinkað Martial Nardeau sem frumflutti það 25.apríl 1998 í Norræna Húsinu. Verkið er í 10 köflum sem leiknir eru án hlés. Nafn Martials myndar 6 tóna hljóm og verkið er að miklu leyti byggt á þessum hljómi (M(i)-a-r(e)-ti-(f)a-l(a bémol)). - Verkið tekur u.þ.b. 11 mín. í flutningi.

Partíta - á nótum (pdf)

-------------------------------------------------------------------------------------------------

Verk fyrir gítar

Tvær gítarfantasíur
voru samdar sumarið 2003 og tileinkaðar Pétri Jónassyni sem frumflutti þær á Myrkum músíkdögum 9. febrúar 2004 í Listasafni Íslands. Verkið er hugsað sem ein heild en það má líka flytja fantasíurnar hvora í sínu lagi.

Tvær gítarfantasíur - á nótum (pdf).


--------------------------------------------------------------------------------------------------

 

Upphafssíða

Efst á síðu