Upphafssíða

Hljómsveitarverk

eftir

Snorra Sigfús Birgisson

Sinfóníuhljómsveit

Coniunctio

 

Sinfóníuhljómsveit og píanó

Píanókonsert

 

Strengjasveit

Hymni

Coniunctio
Coniunctio var samið árið 1994 að beiðni þáverandi stjórnar Tónskáldafélags Íslands og með tilstyrk Tónskáldasjóðs Ríkisútvarpsins í tilefni af 50 ára afmæli Tónskáldafélagsins (1995). Ég endurskoðaði verkið nokkuð sumarið 1999.

Gullgerðarmenn miðalda töluðu um "coniunctio" þegar andstæður runnu saman eða þegar reynt var að bræða einn málm úr tveimur. Í ritum þeirra er einnig getið um þríeiningu, "coniunctio triptiva", og þegar frumefnin fjögur sameinuðust var það nefnt "coniunctio tetraptiva". Þótt ég viti ekki mikið um gullgerðarmenn og þeirra viðfangsefni leyfði ég mér að taka að láni þetta orð, "coniunctio" og nota sem heiti á verki mínu. Í tónverki er yfirleitt a.m.k. tvennt í gangi í einu og stundum miklu fleira, en það sem máli skiptir er að bræða efniviðinn saman í eina heild.


  ----------------------------------------------------

Píanókonsert
Þetta verk var samið árið 1996 að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Hljómsveitin styrkti mig til verksins og það gerði einnig Eimskipafélag Íslands hf. Verkið er í 3 þáttum. Ekkert hlé er á milli fyrsta og annars þáttar og einleiks-kadensa tengir annan og þriðja þátt saman.

Í fyrsta kaflanum blandast saman efni af ýmsum toga og í raddskránni er að finna orð eins og leitandi, innilega, leikandi, glaðlega, frjálslega og fínlega. Annar kaflinn er hægur og tregafullur en lokakaflinn reynir að ná því markmiði sem hann hefur sett sér.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar frumflutti verkið á Akureyri 5.janúar 1997. Höfundur lék einleikshlutverkið.

Verkið er tileinkað Guðmundi Óla.

-------------------------------------------------------------------------

Hymni
var upphaflega (1982) saminn með litla strengjasveit í huga (Nýju strengjasveitina) en verkið hefur einnig verið flutt af stórri strengjasveit. (Nánar um ýmsar útgáfur verksins).

Upphafssíða

Æviatriði

Verkalisti (í tímaröð)

Dreifing

heimilisföng, netföng,vefföng,hljóðrit,...

Tónverk (eftir gerð):

 

English