|
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Píanó
4-hent
4 lög
úr Norður-Múlasýslu
Þetta
verk var samið árið 2008 og er tileinkað
Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur
píanóleikara sem á ættir að
rekja austur í Vopnafjörð. Um er að
ræða útsetningar á fjórum
lögum finna má í "Munnlegu geymdinni"
(http://ismus.musik.is). Kaflar verksins heita:
1. Gekk ég fram á Kvíslarskarð
2. Þú mátt hafa vit í
vösum
3. Um Ísalönd aukast nú
vandræðin
4. Fönnin úr hlíðinni fór
Anna Guðný og höfundur frumfluttu verkið
í Norræna Húsinu 9. febrúar 2009
á Myrkum músíkdögum.
4
lög úr Norður-Múlasýslu
á nótum
(pdf).
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Fagott,
fiðla, víóla og
selló
Línudansarinn
Tónverkið
Línudansarinn var samið árið
2007 að beiðni Brjáns Ingasonar og er
tileinkað honum. Verkið er í tveimur
köflum. Ekkert hlé er á milli
kaflanna.
Nýsköpunarsjóður tónlistar
- Musica Nova veitti styrk til verksins. - S.S.B.
Línudansarinn
á nótum (pdf).
-----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Víóla og
marimba
Brúðkaupssálmur
var
brúðkaupsgjöf (1999) til hjónanna
Herdísar Önnu Jónsdóttur og Steefs
van Oosterhout sem frumfluttu lagið árið
2000.
Lagið er að finna í Hólabókinni
(1619).
Brúðkaupssálmur
á nótum (pdf).
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Fimm lög
frá Gautlöndum
er
tónverk sem samið var árið 2008 að
beiðni Herdísar Önnu
Jónsdóttur og Steefs van Oosterhout sem
frumfluttu verkið á Gljúfrasteini 28.
júní 2009.
Í verkinu eru útsetningar á fimm
íslenskum þjóðlögum sem
Hómfríður Pétursdóttir
(1889-1974) söng inn á segulband sumarið
1969.
Hólmfríður var afasystir Herdísar
Önnu. Kaflarnir í verkinu heita:
1. Ása gekk
um stræti
2. Hattur burt er horfinn minn
3. Heyrðu villuhrafninn mig
4. Tófa tölti um stræti
5. Um fölvar kinnar falla tár
Fimm
lög frá Gautlöndum. Allt verkið
á nótum (pdf).
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Flauta
og píanó
Þrjú
lög að austan
Þetta verk
var samið árið 2003 og tileinkað systur
minni Guðrúnu Sigríði
Birgisdóttur, flautuleikara, sem frumflutti
það á
tónlistarhátíðinni Við
Djúpið sumarið 2003. Jónas
Ingimundarson lék á píanó.
Verkið er í þremur köflum og í
hverjum kafla er hugleiðing um íslenskt
þjóðlag. Lögin þrjú
heyrði ég í segulbandasafni Stofnunar
Árna Magnússonar. Heimildarmennirnir voru
allir að austan.
Þrjú
lög að austan - á nótum
(pdf)
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Klarinett (í B) og
píanó
Cantilena
Þetta
verk er tileinkað Óskari Ingólfssyni
klarínettleikara sem frumflutti það
í Gerðubergi árið 1989 sama ár
og það var samið. Höfundur lék
á píanó. Verkið er í einum
kafla og tekur u.þ.b. 6 mínútur í
flutningi.
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Klarinett (í B),
selló og
píanó
"...the sky
composes promises..."
Þetta
verk var samið árið 1989 að beiðni
Svenska Rikskonserter í
Svíþjóð. Verkið er í 2
köflum sem leiknir eru án hlés og tekur
u.þ.b. 12 mínútur í flutningi.
Fyrri kaflinn er settur saman úr 25 stuttum
formhlutum sem allir eru mislangir (oftast 4-6 taktar) og
í ólíkum takttegundum en
síðari kaflinn er í 8 hlutum sem allir eru
jafn langir (12 taktar) og án taktskipta. Nafn
verksins er fengið að láni úr
kvæðinu Sunday Skaters, Reykjavik eftir
bandarísku skáldkonuna Mary Jo Salter.
Verkið var frumflutt á Stockholm New Music
hátíðinni vorið 1990. Flytjendur voru
Kjell Fagéus (klarínett), Torleif
Thedéen (selló) og Stefan Bojsten
(píanó).
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Strengjakvartett
Strengjakvartett
nr. 2
Þetta
verk var samið árið 1991 og frumflutt
á tónleikum Caput
í
Listasafni Íslands 12. febrúar 1995.
Flytjendur voru Auður Hafsteinsdóttir
(fiðla), Sigurlaug Eðvaldsdóttir (fiðla),
Helga Þórarinsdóttir
(víóla) og Bryndís Halla
Gylfadóttir (selló). Sömu flytjendur
hljóðrituðu verkið og sú
hljóðritun er til á geisladiski
(ITM
8-08).
Verkið er í 3 þáttum sem leiknir eru
án hlés og tekur u.þ.b. 11
mínútur í flutningi. Fyrsti kaflinn er
lengstur, settur saman úr margbreytilegu efni, sem
þó stefnir í eina átt. Annar
kaflinn er fábreytilegur í eðli
sínu, en stefnir í margar áttir
samtímis. Síðasti kaflinn er
örstuttur, kinkar þrisvar kolli til hinna
tveggja.
Strengjakvartett
nr. 2 - raddskrá (pdf)
Strengjakvartett nr.
3
Strengjakvartett
nr. 3 var saminn fyrir Brodsky-kvartettinn að beiðni
Listahátíðar. Ég hóf að
semja verkið haustið 2003 og lauk við
það snemma á árinu 2004. Verkið,
sem er u.þ.b. 12 mínútur að lengd,
er í einum kafla en sett saman úr nokkrum
sjálfstæðum formhlutum. Brodsky-kvartettinn
frumflutti verkið 28.maí 2004 í
Íslensku Óperunni.
Strengjakvartett
nr. 3 - raddskrá
(pdf)
----------------------------------------------------------------------------------------
Fiðla og
píanó
Novelette
Þetta
verk var samið árið 1993 fyrir
Þórhall Birgisson fiðluleikara og er
tileinkað honum. Þórhallur frumflutti
verkið ásamt höfundi í Norræna
Húsinu 14. maí 1993. Verkið er í
einum þætti og í því
blandast saman þrjú hröð tempó
og 3 helmingi hægari tempó. Það tekur
u.þ.b. 12 mínútur í
flutningi.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Tvær
flautur
Hlið
við hlið
Þetta
verk var samið 1995 og er tileinkað flautuleikurunum
Guðrúnu Sigríði Birgisdóttur og
Martial Nardeau sem frumfluttu það árið
1997. Verkið hefur nokkrum sinnum verið
endurskoðað lítillega (síðast
árið 2000) og eftir síðustu
endurskoðun heitir það Hlið við
hlið (upphaflega hét það latnesku
nafni).
Verkið er
í 4 aðskildum þáttum sem
þó eru samtengdir. Verkið tekur
u.þ.b. 12 mínútur í
flutningi.
Hlið
við hlið - raddskrá
(pdf).
5
íslensk þjóðlög
Þessar
útsetningar eru frá árinu 2007 og eru
tileinkaðar Martial Nardeau sem átti
merkisafmæli það ár. Hann og
Guðrún Sigríður Birgisdóttir
frumfluttu lögin opinberlega á tónleikum
á Gljúfrasteini 19. júlí
2009.
5
íslensk þjóðlög -
raddskrá (pdf)
Efst
á síðu
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Tvær
víólur, selló og
kontrabassi
Hymni
Þetta verk var upphaflega samið
fyrir strengjasveit (1982). Höfundurinn hefur gert
nokkrar útsetningar á verkinu fyrir
ýmsa hljóðfærahópa.
Þessa útsetningu fyrir tvær
víólur, selló og kontrabassa gerði
hann árið 1999 og var hún frumflutt 24.
júlí það sama ár í
Skálholtskirkju. Verkið er í 11
örstuttum köflum sem allir eru í
mixólydiskri tóntegund og leiknir mjög
hægt.
Efst
á síðu
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Óbó og
píanó
Lausavísur
Þetta verk
var samið 2002 fyrir óbóleikarann
Matthías Birgi Nardeau (f.1982) og tileinkað
honum. Matthías frumflutti Lausavísur
á tónleikum í Salnum í
Kópavogi 18.mars 2003 þegar hann lauk
einleikaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík.
Höfundur lék á píanó.
Verkið er í tveimur köflum sem heita:
1. Blágrá mín er besta ær
2. Bolakálfur baular þinn.
Efniviður verksins er fenginn úr
þjóðlögum. Ekki er um "venjulegar"
útsetningar að ræða heldur mjög
frjálslega meðferð á lögunum.
Lausavísur
- á nótum
(pdf)
Efst
á síðu
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Slagverk (3) og
píanó
Þrír
þættir úr Bendukonsert
Þetta verk er eins og
nafnið bendir til í 3 köflum. Það
er samið fyrir 3 slagverksleikara og
píanísta. Kaflarnir heita: Forspil, Millispil
og Eftirspil og er tvo þeirra einnig að finna
í Caputkonsert
nr. 2 þar sem þeir
eru í öðru samhengi.
Verkið er
samið fyrir og tileinkað meðlimum
slagverkshópsins Bendu, þeim Eggerti
Pálssyni, Pétri Grétarssyni og Steef
van Oosterhout.
1. kaflinn, Forspil, er fyrir
slagverk eingöngu en Millispil og
Eftirspil eru fyrir slagverk og
píanó.
Þrír
þættir taka u.þ.b. 11
mínútur í flutningi.
Slagverkshljóðfæri:
perc. 1:
talking drum, finger cymbals (par, susp.), 2 cymbalar (M og
S - susp.), víbrafónn (án
mótors).
perc. 2: bodhrán, large chinese hand cymbal
(susp.), 2 dobachi (stór), wood block, bongos,
víbrafónn (án mótors).
perc. 3: darabouka, marimba.
Þrír
þættir úr Bendukonsert - raddskrá
(pdf)
Þrír
þættir úr Bendukonsert - listi yfir
hljóðfæri
(pdf)
Efst
á síðu
----------------------------------------------------------------------
Slagverk (1) og
píanó
Fimm
kvæði
Þetta verk var samið
árið 2008 og er tileinkað Pétri
Grétarssyni slagverksleikara. Pétur og
höfundur frumfluttu verkið í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar 25.ágúst
2009.
Kaflarnir eru fimm að tölu og heita
1. Stúlkurnar ganga sunnan með
sjá
2. Ása gekk um stræti
3. Katrínarkvæði
4. Státsmey sat í sorgum
5. Ég veit eina baugalínu
Lengd verksins er: 14'30''
Fimm
kvæði - raddskrá á nótum
(pdf)
-----------------------------------------------------------------------
Trompet og
píanó
Ari á
Unnarstöðum
fyrir
trompet
í C (eða B) og píanó var samið
árið 2001 og endurskoðað árið
2006. Verkið er tileinkað Jóhanni Nardeau sem
frumflutti það á
burtfararprófstónleikum sínum
frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 10. maí, 2006. Höfundur
lék á píanóið.
Verkið er hugleiðing um samnefnt íslenskt
þjóðlag.
Ari
á Unnarstöðum - raddskrá
(pdf).
---------------------------------------------------------------------------
4
selló (eða sellósveit)
Lilja
Sumarið 2004 var
haldið sellónámskeið í
Gambrils sem er lítill bær rétt
sunnan við Barcelona. Nokkrir íslenskir
sellónemendur tóku þótt í
námskeiðinu ásamt þarlendum
nemendum. Einn af kennurum námskeiðsins, Richard
Talkowsky, bað mig um að útsetja
Lilju-lagið fyrir hópinn, sem ég
gerði, og var útsetningin frumflutt í
nágrenni Gambrils í lok
námskeiðsins.
Lilja -
raddskrá (pdf)
---------------------------------------------------------------------------
|