Upphafssíða

Snorri Sigfús Birgisson:

Verk fyrir kammersveitir

(7 flytjendur eða fleiri)

 

Málmblásarasveit og slagverk
Þáttur

Strengjasveit
Hymni

Nemendahljómsveit
(fiðlur og selló)
Hymni

Sellósveit (eða 4 selló)
Hymni
Lilja

Sellósveit (eða 3 selló)
Vögguvísa Snorra Þorfinnssonar

Flauta, klarinett, fiðla, víóla,
selló, píanó og marimba
Í segulsviði

Sópran, klarínett, slagverk (1),
2 víólur, selló og kontrabassi
Fegurð veraldar mun hverfa

"Sinfóníetta"
Caputkonsert nr. 1

3 slagverks-sólistar + "sinfóníetta"
Caputkonsert nr. 2

Einleikspíanó + "sinfóníetta"
Píanókonsert nr.2

Sögumaður + "sinfóníetta" (án kontrabassa)
Stúlkan í turninum

Sópran + "sinfóníetta"
The Drift of Melancholy

Kontrabassi + "sinfóníetta"
Konsert fyrir kontrabassa og kammersveit

----------------------------------------------------- -
Konsert fyrir kontrabassa og kammersveit
er tileinkaður Hávarði Tryggvasyni kontrabassaleikara. Það er samið fyrir hann og CAPUT-hópinn.
Konsertinn er í 12 köflum. Fyrstu kaflarnir standa einir og sér en þegar líður á verkið dregur úr sjálfstæðinu og seinni hluti verksins er leikinn í samfellu, - án hlés milli kafla. Verkið var frumflutt 5.maí 2010. Flytjendur voru Hávarður Tryggvason og CAPUT-hópurinn. Höfundur stjórnaði.

Konsert fyrir kontrabassa og kammersveit á nótum (pdf-skjal)
-------------------------------------------------------
The Drift of Melancholy
var samið árið 2006 fyrir The New Juilliard Ensemble í New York að beiðni Joels Sachs stjórnanda hópsins. Verkið var endurskoðað lítillega árið 2008. Þegar ég byrjaði að hugsa um hvernig best væri að bregðast við beiðni Sachs um tónverk komu ljóð bandarísku skáldkonunnar Mary Jo Salter fljótlega upp í hugann. Hún bjó hér á landi um nokkurt skeið seint á níunda áratug síðustu aldar ásamt fjölskyldu sinni og þá kynntist ég ljóðum hennar. Hljómurinn í þeim er mjög aðlaðandi og þau eru myndrík svo það liggur beint við að setja tóna við þau og það dreymdi mig um að gera. Þegar tækifæri gafst til að semja fyrir unga flytjendur í New York var kjörið að láta drauminn rætast. Ljóðin sem ég valdi eru ólík að gerð og innihaldi en í mínum huga tengjast þau hvert öðru á svipaðan hátt og vorið tengist sumrinu og sumarið haustinu.

The Drift of Melancholy er tileinkað Joel Sachs og The New Juilliard Ensemble. S.S.B.

Frumflutningur: The New Juilliard Ensemble (stjórnandi: Joel Sachs, sópran: Charlotte Dobbs) Alice Tully Hall, New York, 20.apríl, 2007.

The Drift of Melancholy á nótum - pdf-skjal

-----------------------------------------------------

Þáttur
fyrir málmblásarasveit og slagverk var saminn árið 1978 í Amsterdam og er tileinkaður Hákoni Snorra van Gelder. Verkið er í einum þætti og tekur u.þ.b. 9 mínútur í flutningi. Verkið var frumflutt í Osló undir stjórn Per Lyng og skömmu síðar var það flutt á UNM-hátíð í Stokkhólmi undir stjórn Leif Segerstam.

  ----------------------------------------------------

 Hymni
fyrir strengjasveit var saminn árið 1982 fyrir Nýju Strengjasveitina og frumfluttur undir stjórn höfundar á tónleikum í Bústaðakirkju. Verkið samanstendur af 11 köflum sem allir eru í mixólýdískri tóntegund, mjög stuttir og hægir. Höfundur hefur búið til ýmsar útgáfur af verkinu fyrir ýmis hljóðfæri. Þær helstu eru:

1) fyrir nemendahljómsveit: fiðlur (I og II) og selló (I og II)
2) fyrir 2 víólur, selló og bassa
3) fyrir 2 klarinett, fiðlu og selló
4) fyrir píanó
(Hymni fyrir píanó á nótum - pdf)
5) fyrir 4 selló (eða fjögurra radda sellósveit)

Útgáfan fyrir nemendahljómsveit er styttri en hinar, 6 kaflar í stað 11.


 ----------------------------------------------------

 Í segulsviði
fyrir flautu, klarínett (í B), fiðlu, víólu, selló, marimbu og píanó var samið árið 1996 að beiðni NOMUS fyrir AVANTI!, Caput, BIT 20, Composers Ensemble, Sonanza og Storströms Kammerensemble í tengslum við The Nordic Music Season in the UK 1995-1997.

Höfundur segir um verkið:

"Verkið er í einum kafla en sett saman úr nokkrum sjálfstæðum formhlutum. Lagrænt efni einkennir einn hlutann, ritmískt efni annan, sumt er glaðvært annað íhugult og þannig mætti áfram telja en markmiðið er að láta hina mismunandi formhluta vinna saman þótt ólíkir séu eins og þeir tilheyri einu og sama segulsviðinu."

Caput, undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar, frumflutti verkið í Listasafni Íslands 11.2.1997.

 ----------------------------------------------------------

 Fegurð veraldar mun hverfa

fyrir sópran, klarínett, 2 víólur, selló, bassa og slagverk (1).

Sjá nánar: Söngverk

 -------------------------------------------------------------------

 Vögguvísa Snorra Þorfinnssonar

er samið fyrir sveit nemenda í sellóleik (eða 3 selló). Í Grænlendinga sögu segir að Guðríður Þorbjarnardóttir og Þorfinnur karlsefni hafi eignast soninn Snorra á Vínlandi. Næstum 1000 árum síðar, í nóvember árið 2000, fóru nokkrir þáverandi og fyrrverandi selló-nemendur úr Suzukitónlistarskólanum í Reykjavík í ferð til Boston og léku m.a. þessa "Vögguvísu Snorra Þorfinnssonar".

Vögguvísa Snorra Þorfinnssonar á nótum (pdf-raddskrá).

Caputkonsert nr. 1

fyrir flautu, óbó, klarínett í B, fagott, horn í F, trompet í C, básúnu, slagverk (1)*, píanó og strengi (2-1-1-1) var saminn samkvæmt beiðni CAPUT-hópsins með tilstyrk frá Reykjavík - meningarborg árið 2000. Caput frumflutti verkið í Langholtskirkju 11.nóv. 2000 undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar.

Verkið er í einum þætti og tekur u.þ.b. 20 mínútur í flutningi. Það var endurskoðað árið 2002 og flutti CAPUT undir stjórn Guðmundar Óla nýja gerð verksins í Berlín 1.12.2002 á Norrænum músíkdögum ("Magma").

*Slagverkshljóðfæri: Wind gong (L), 3 Peking gong (H,M,L), sérlega lítill cymball (susp.), víbrafónn, marimba, sizzle-cymball, darabuka, bassatromma (með fótpedal), brake drum, stór kúabjalla (óviss tónn), 2 gong ("tuned").

Caputkonsert nr. 1 - allt verkið á nótum (pdf)

---------------------------------------------------------------------

Caputkonsert nr. 2

fyrir flautu, óbó, klarínett í B, fagott, trompet í C, básúnu, píanó, strengi (2-1-1-1) og þrjá slagverks-sólista**. Verkið er samið fyrir og tileinkað meðlimum slagverkshópsins Bendu, þeim Eggerti Pálssyni, Pétri Grétarssyni og Steef van Oosterhout. Þættir verksins eru fjórir:

1. Forspil
2. Hugleiðsla
3. Vikivaki
4. Eftirspil.

Tveir þessara þátta (nr. 1 og 4) eru einnig hluti af öðru verki sem nefnist
Þrír þættir úr Bendukonsert. Forspil er fyrir slagverk eingöngu, Eftirspil eru fyrir slagverk og píanó en Hugleiðsla og Vikivaki eru fyrir kammersveit og slagverk. Þriðji kaflinn, Vikivaki, byggir á þjóðlagi sem nefnist Þorkelsdætra kvæði.

Caputkonsert nr. 2 tekur u.þ.b. 22 mínútur í flutningi.

**Slagverkshljóðfæri:

Perc. 1:

Talking Drum, -Vibraphone 1 (without motor), - Crotales 1 (skrifað: f ', ges' , f " , ges" ), -
2 African Tom-toms (H, L), - Pair of Finger Cymbals (suspended), - 2 Suspended Cymbals.

Perc. 2:

Bodhrán, - Vibraphone 2, - Crotales 2 (skrifað: cís' , d' , cís" , d" , es" ), - 2 Low Dobachi, - Wood Block, - 2 pairs of Bongos (1st set: high pitch, 2nd set: low pitch), - Large suspended Chinese Hand Cymbal - (shared with Perc.3).

Perc. 3:

Darabouka, - Marimba, - A pair of large Chinese Hand Cymbals (with very big dome), one cymbal is shared with Perc.2, - Junior Conga, - Conga, - 2 Boobams (ML, L).

Caputkonsert nr. 2 - allt verkið á nótum (pdf).

 ----------------------------------------------------------------------------------------

Píanókonsert nr.2

fyrir einleikspíanó og kammersveit var saminn árið 2005 að tilstuðlan Tónskáldasjóðs RÚV
fyrir CAPUT og Víking Heiðar Ólafsson píanóleikara.
Verkið er í þremur köflum og tekur 25 mínútur í flutningi.

Hljóðfæraskipan er sem hér segir: 1-1-1-1, 1-1-1-0, Slagverk (2 spilarar)*, harpa, einleikspíanó, 2 fiðlur, víóla, selló og kontrabassi.

*Slagverkshljóðfæri:

* Perc. 1:

Glockenspiel, Marimba, Suspended Cymbal, Bongos, 2 Timbales (h,l), Temple Blocks

*Perc. 2:

5 Tom-toms (h, mh, m, ml, l), Woodblock, Machine Castanets, Vibraphone

Verkið er tileinkað Víkingi Heiðari Ólafssyni píanóleikara.

Píanókonsert nr. 2 - raddskrá (pdf)

Píanókonsert nr. 2 á Youtube.

------------------------------------------------------------------------------------------

Lilja
Sumarið 2004 var haldið sellónámskeið í Gambrils sem er lítill bær rétt sunnan við Barcelona. Nokkrir íslenskir sellónemendur tóku þótt í námskeiðinu ásamt þarlendum nemendum. Einn af kennurum námskeiðsins, Richard Talkowsky, bað mig um að útsetja Lilju-lagið fyrir hópinn, sem ég gerði, og var útsetningin frumflutt í nágrenni Gambrils í lok námskeiðsins.

Lilja - raddskrá (pdf)


------------------------------------------------------------------------------------------

Stúlkan í turninum
Þetta verk sem er fyrir kammersveit* og sögumann, var samið árið 2004 að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Það er hugsað til flutnings í grunnskólum. Sögumaður les sögu Jónasar Hallgrímssonar, Stúlkan í turninum, og hljóðfæraleikararnir "dramatísera" söguna. Verkið sem er 22 mínútur að lengd var frumflutt á fjölskyldutónleikum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Samkomuhúsinu á Akureyri 17.apríl 2005. Stjórnandi var Guðmudur Óli Gunnarsson og sögumaður var Skúli Gautason. Haustið 2005 flutti S.N. verkið tuttugu og átta sinnum í grunnskólum á Norðurlandi. Höfundur var sögumaður í öll skiptin. Þetta verk hefur nú verið gefið út á geisladiski (STB 002).

*Hljóðfæraskipan: 1-1-1-1, 1-1-1-0, píanó, slagverk (1), strengjakvartett

------------------------------------------------------------------------------------------

 Efst á síðu

Upphafssíða

English