Upphafssíða


Snorri Sigfús Birgisson:

Kennslumúsík


 

Píanólög fyrir byrjendur
25 lög í fjórum heftum.

Píanólög fyrir byrjendur voru samin 1984 og höfundur gaf þau út árið 1987
(Steinabær nr. 1-4).
Íslensk tónverkamiðstöð sér um dreifingu.

Í lögunum eru ýmsar aðferðir notaðar sem algengar eru í "nútímatónlist". Sem dæmi má nefna að stundum er leikið beint á strengi hörpunnar, í 2 lögum er leikið með segulbandi, oft er notuð nótnaskrift sem ekki byggir á hefðbundinni taktskipan heldur ræðst hljóðfall af því hvernig nótur og tákn dreifast á nótnapappírinn, í sumum lögum eru gerðar tilraunir með opið form, yfirtóna, tilviljanir, kapphlaup milli nemanda og kennara o.s.frv.

Lögin 25 skiptast þannig milli hefta:

1. hefti
Regnbogi. + og -. Huldufólk. Kling klang. Ugla sat á kvisti. Teningaspil. Mono. f p.

2. hefti
Sálmur. Composition. Grátsöngur. Molto Espressivo. Slökkvilið. Ensemble. Draugasaga. Köttur og mús.

3. hefti - Árstíðirnar
Sumar. Haust. Vetur. Vor.

4. hefti - Geimferðalög
(4-hent)
Á jörðinni. Sólkerfið. Marsbúi. Vetrarbrautin. Venus.

Höfundur og Gísli Magnússon frumfluttu Píanólögin í Norræna Húsinu skömmu eftir að þau voru samin.

Upphafssíða

Æviatriði

Verkalisti (í tímaröð)

Dreifing

heimilisföng, netföng,vefföng,hljóðrit,...

Tónverk (eftir gerð)

 

English