Krakkar á æfingu  

Skólahljómsveitir í Fossvogsskóla

Samstarfsverkefni Tónlistarskóla Árbæjar og Fossvogsskóla 2007-2008

Tónlistarskóli Árbæjar Fossvogsskóli

 
line decor
  
line decor
 
 
 
 

 
 
Spilað í dalnum!

Vel heppnaðir lokatónleikar hjá Spilað í dalnum.

Spilað í dalnum hélt vel heppnaða vortónleika mánudaginn 18. maí. Foreldrar og nemendur gæddu sér á Pizzu eftir tónleikana þar sem krakkarnir spiluðu fjölbreytta efnisskrá þar sem m.a. mátti heyra júróvisíon lagið vinsæla: Is it true, sem Jóhanna Guðrún kom í annað sæti í henni Moskvuborg.   

Skoðið myndir frá tónleikunum hér.

Skoðið myndir sem teknar voru í sjónvarpinu af krökkunum við upptökur hér.

Veturinn 2008-2009

Spilað í dalnum komið í sjónvarpið!

Spilað í dalnum kom fram í stundinni okkar og stóð sig frábærlega. Hægt er að horfa á þáttinn þar sem eldra samspilið llék Fjöllin hafa vakað eftir Bubba. Smellið hér!

Þvílík ánægja var með eldra samspilið að nú vill sjónvarpið fá yngra samspilið líka í Stundina Okkar.

Komnar skemmtilegar myndir af æfingum og tónleikum nemenda á degi íslenskrar tungu í Fossvogsskóla sem hann Árni Freyri Sigurlaugsson tók! Kíkið á myndirnar hér!

Starfsemin hefst að nýju!

Annað starfsár Spilað í dalnum er nú að hefjast og hafa tugir umsókna nú þegar borist inn. Ekki komast allir að og er valið inn með hliðsjón af hljóðfæraskipan hljómsveitanna. Æfingar hefjast í næstu viku. Snorri Heimisson mun að venju stýra sveitunum en nýr kennari hefur bæst í hópinn og heitir hann Guðmundur Hólmar og er gítarleikari.

28.maí

Spilað í dalnum lét sig ekki vanta á vorhátíð Fossvogsskóla!

Skoðið myndirnar hér!

Fréttir 19.apríl

Eldra og yngra samspilið kom fram á fundi með Borgarstjóra, hverfisráði, íbúasamtökum, þjónustumiðstöð,
framkvæmdasviði og umhverfis og samgöngusviði undir yfirskriftinni 1, 2 og Reykjavík í Réttarholtsskóla laugardagnn 19. apríl.. SKoðið myndir frá tónleikunum hér!

 

Fréttir 4.apríl 2008:

Mánudaginn 7. apríl voru hópar 7 og 8 með bekkjarkvöld. Dagskráin var viðamikil og taldi 15 atriði. Gestir mættu klukkan 17:30 og síðan hófst skemmtunin með því að hljómsveitin Spilað í dalnum lék tvö lög. Sjá mynd!

Fréttir 14.mars 2008:

Furðufatadagurinn í Fossvogsskóla 14. mars

Hljómsveitin kom fram og spilaði nokkur lög í hinum undarlegasta fatnaði!

Skoðið myndir úr framköllunarveri Hogwarth skólans!

Fréttir4. janúar 2008:
Spilað í Dalnum

  • Miðvikudaginn 19. desember spiluðu skólahljómsveitir Fossvogsskóla fyrir nemendur skólans. Yngri sveitin skipuð nemendum í 9 og 10 bekkjunum spilaði lagið Snjókorn falla og eldri sveitin, skipuð nemendum í 11 og 12 ára bekkjum, spilaði tvö lög. Fyrra lagið Hvar sem ég fer söng stórsöngkonan Sandra Smáradóttir og seinna lagið var Ég les í lófa þínum. Takk fyrir góðan flutning. Sjá myndir hér!
  • Skemmtileg stemning var hjá börnum og foreldrum á jólaföndrinu á fullveldisdaginn, 1. desember. Skrautleg listaverk voru sköpuð á hverju borði undir ljúfum tónum. Sjá myndir hér!
    • Verkefnið fer vel af stað. Fyrstu tvær vikurnar var lögð áhersla á að meðlimirnir næðu vel saman, lærðu nöfnin hvert á öðru og lærðu að klappa léttan hryn.
    • Lögð var áhersla á að allir lærðu 3 nótur til þess að byrja með. Flautur g, a og h, klarinett c, d, og e og saxófónar g, a og h. Gítar og bassi lærðu snemma að spila c, f og g. Þegar þetta var komið var hægt að spila létt lög sem stjórnandinn sá um að útsetja.
    • Blásaranemendur fjárfestu í bókinni “Accent on achivement” sem þau nota heima hjá sér og með blásarakennara í hóptímum á miðvikudögum. Með bókinni fylgir geisladiskur með undirleik sem þau geta notað við æfingar heima fyrir.
    • Eftir fyrstu fjórar vikurnar var nemendur farið að lengja eftir að spila lög, svo yngra samspilið réðst í að læra “Ég heyri svo vel” og eldra samspil lærði “Hvert sem ég fer” eftir Magna.
    • Þetta gekk vonum framar og hafa báðir hópar næstum náð tökum á þessum lögum. Eldra samspilið hefur nú að auki fengið lagið “Ég les í lófa þínum” til viðbótar og yngra samspil hefur fengið “Bjart er yfir Betlehem.”
    • Markmiðið er að bæði yngra og eldra samspil komi fram á jólatónleikum og flytji áðurnefnd lög.

     

       

 
 

 

Tónlistarnám
Tónlistarnám sem fer fram í samspilsformi og hóptímum.

   Samstarf Tónlistarskóla Árbæjar og Fossvogsskóla.