Í vetur verða starfræktar hljómsveitir í Fossvogsskóla í samstarfi við Tónlistarskóla Árbæjar. Fagleg stjórn verkefnisins er á höndum tónlistarskólans. Verkefnið sjálft er útfært í samvinnu grunnskólans og tónlistarskólans. Kennarar eru menntaðir tónlistarkennarar úr Tónlistarskóla Árbæjar. Öll starfsemin fer fram á skólatíma.
Hljómsveitirnar:
Sveitirnar verða tvær: Eldri 11 – 12 ára og yngri sveit 9 – 10 ára. Nemendur fara úr kennslustundum á skólatíma á æfingar sem eru þrisvar sinnum í viku. Æfingarnar skiptast í samspilsæfingar sem eru 60 mínútur í senn og hljóðfæratíma þar sem nemendur hittast nokkrir í hóp undir leiðsögn, 40 mín. í senn. Vantar samvinna foreldra
Eldri sveit:
Hljómsveitaræfingar tvisvar 60 mín. í viku og hrynsveit 1 sinni 40 mín.
Yngri sveit:
Hljómsveitaræfingar tvisvar 60 mín. í viku og hrynsveit 1 sinni 40 mín. Auk þess mæta blásturshljóðfærahópar (t.d. þverflautunemendur saman) í aukatíma 1 sinni 40 mín.
Athugið að eingöngu verður kennt það samspilsefni sem fyrir liggur í þessum tímum sem og þeir nauðsynlegu tækniþættir á hljóðfærin til að nemendur geti leikið fyrirlagt efni. Ekki fara fram stigspróf eða önnur almenn próf sem tilheyra starfi almennra tónlistarskóla.
Áherslan er lögð á félagslegan þátt tónlistariðkunar og að sveitirnar komi fram við sem flest tækifæri á vegum Fossvogsskóla. Nám af þessu tagi er viðkvæmt og því gerðar strangar kröfur til nemenda um hegðun og ástundun. Allar athugasemdir varðandi faglega þætti starfseminnar skulu berast Tónlistarskóla Árbæjar, sjá nánar á www.tonarb.net |