Spurt og svarað
Hvar sæki ég um?
Nemendur skrá sig á þar til gerð umsóknareyðublöð á skrifstofu Fossvogsskóla.
Eftir að skráning hefur farið fram er nemandi boðaður í áheyrn á ákveðnum tíma.
Hvenær hófust æfingar?
Æfingar hófust í vikunni 17. september.
Þarf ég að eiga hljóðfæri?
Hægt verður að leigja ákveðin hljóðfæri skv. lista en önnur hljóðfæri þurfa nemendur að eiga sjálfir.
Hljóðfæri sem hægt er að leigja eru:
Þverflautur (4 stk.)
Klarinettt (4 stk.)
Altó saxófónar (2 stk.)
Öll önnur hljóðfæri verða til staðar í skólanum þannig að nemandi þarf ekki frekar en hann vill að koma með hljóðfæri sitt í skólann.
Hverjir stjórna hljómsveitunum?
Stjórnandi hljómsveitarinnar heitir Snorri Heimisson. Stjórnandi hrynsveita verður Erik Qvick. Faglegur stjórnandi er Stefán S. Stefánsson skólastjóri Tónlistarskóla Árbæjar.
Komast allir að?
Ef aðsókn er mikil í sveitirnar þá er ljóst að einhverjir þurfa að fara á biðlista. Þó ber að hafa í huga að nemandasamsetningin mun breytast vegna þess að 12 ára nemendur útskrifast frá Fossvogsskóla og skilja því eftir laus pláss.
Þarf ég að kunna á hljóðfæri?
Nei, engrar formlegrar tónlistarkunnáttu er krafist. Verkefnið er framkvæmt til þess að gefa nemendum tækifæri á að taka þátt í tónlistarstarfi og fá innsýn í hinn töfrandi heim tónlistarinnar. Þó mun nemendum verða raðað eitthvað eftir getu skv. ákvörðun stjórnanda.
Hvaða tónlist verður spiluð í þessum sveitum?
Ákvörðun stjórnanda um efnisval fer eftir getu og stöðu nemenda. Áhersla er lögð á að hafa efnisvalið fjölbreytt og skemmtilegt. Engin tónlistarstefna er útilokuð og ekkert því til fyrirstöðu að sveitirnar flytji t.d. frumsamin verk nemenda.
Þarf ég að fara í tónlistarskóla til að geta tekið þátt?
Nei, nemendur úr tónlistarskólum eru velkomnir í sveitirnar rétt eins og allir aðrir. Hafi nemandi mikinn áhuga er mælt með því að hann sæki um í tónlistarskóla þar sem fer fram almennt hljóðfæranám samkvæmt aðalnámsskrá tónlistarskóla. |