Hvernig og hvar fer kennslan fram?
Kennsla fer fram í Tónlistarskóla Árbæjar, Fylkishöllinni 2.hæð. (Gegnt Árbæjarsundlaug) , Ingunnarskóla í Grafarholti. og í Norðlingaskóla. Einnig er Tónlistarskóli Árbæjar með samstarfsverkefnið Spilað í dalnum ( www.spiladidalnum.net) í Fossvogsskóla.
Hvenær byrjar skólinn?
Kennsla hefst í byrjun september og kennsla í aukagreinum viku síðar. Vetrarstarfinu lýkur svo um miðjan maí . Skóladagatal mun liggja fyrir í byrjun starfsárfs.
Hvað er í boði?
Kennt er samkvæmt aðalnámsskrá tónlistarskóla útgefinni af Menntamálaráðuneytinu með megináherslu á grunn- og miðnám.
Hvaða hljóðfæri er kennt á?
Kennt er á eftirtalin hljóðfæri við Tónlistarskóla Árbæjar:
- Píanó
- gítar
- bassa
- trommur
- hljómborð
- þverflautu
- saxófón
- rafgítar
- Fiðla
- Selló
Hverjar eru aukagreinarnar?
Tónfræðinám við Tónlistarskóla Árbæjar samanstendur af tónsmíðum, tónfræði, tónlistarsögu, hljóðfærafræði og tónheyrn. Ítarlegur vefstuðningur er við tónfræðanám nemenda. Fullkomnar kennslusíður með videó og fullkomnum margmiðlunarsíðum tryggja skemmtilega og árangursríka kennslu.
Eru hljómsveitir?
Samspilshópar- minni og stærri samspilshópar þar sem hin félagslega hlið tónlistariðkunar er ræktuð. Samleikur og hlustun í mörgum mismunandi hópum s.s. rokksveitir, forskólahópar, þverflautusamspil, píanósamspil, gítarsamspil ofl.
Hvað með tónleika?
Tónleikar og tónfundir. Nokkrir minni tónfundir er haldnir og fara þeir fram í Fylkishöll og Ingunnarskóla. Stærri tónleikar s.s. jóla- og vortónleikar eru haldnir í Árbæjarkirkju.
Hvernig veit ég að námið er fullgilt tónlistarnám?
Allt nám í hljóðfæragreinum miðast við almenna námsskrá og eru þreytt stigspróf við skólann. Þeir nemendur sem ekki taka stigspróf taka vorpróf. Verkefni og próf eru haldin í aukagreinum.
Hvaða námsleiðir er boðið upp á?
Heilt nám : Einkatímar 2svar í viku (2x25 mín.) Aukagreinar (Tónfræði, tónheyrn, tónlistarsaga, samspil) 1sinni til 2svar í viku. Aukagreinar (nema samspil) getur nemandi valið um að mæta í tíma í skólanum eða stunda námið á netinu. Nemandi hefur þar aðgang að sérhönnuðu vefkennsluefni Tónlistarskóla Árbæjar sem tengist getustigi og hljóðfæranámi hans. Eftir ákveðna áfanga þreytir nemandi próf í tónfræðigreinum sem eru í samræmi við aðalnámskrá. Valið er í samspil með tilliti til getu nemanda.
Hálft nám : Einkatímar 1sinni í viku (30 mín) aukagreinar 1sinni í viku (Tónfræði, tónheyrn, tónlistarsaga, samspil.) Nemandi getur einnig valið vefstudda tónfræðikennslu. Tilvalið fyrir nemendur og forráðamenn þar sem verið er að prófa tónlistarnám, þ.e. hvort það henti nemandanum.
Hvernig sæki ég um?
Allar umsóknir þurfa að fara um Rafræna Reykjavík sem er þjónustugátt fyrir borgarbúa á netinu. Rafræna Reykjavík má nálgast á veffanginu www.rvk.is.
Einnig er æskilegt að senda umsókn í tölvupósti á tonarb@heimsnet.is eða hafa samband símleiðis.