Upplýsingar um nám við Tónlistarskóla Árbæjar

Hvernig og hvar fer kennslan fram?
Kennsla fer fram í Tónlistarskóla Árbæjar, Fylkishöllinni 2.hæð. (Gegnt Árbæjarsundlaug), í Ingunnarskóla í Grafarholti og Sæmundarseli við Reynisvatn.

Hvenær byrjar skólinn?
Kennsla hefst í byrjun september og kennsla í aukagreinum viku síðar. Vetrarstarfinu lýkur svo um miðjan maí 2007. Skóladagatal mun liggja fyrir í byrjun starfsárfs.

Hvað er í boði?
Kennt er samkvæmt aðalnámsskrá tónlistarskóla útgefinni af Menntamálaráðuneytinu með megináherslu á grunn- og miðnám.

Kennslugreinar

Kennt er á eftirtalin hljóðfæri við Tónlistarskóla Árbæjar:

  • Píanó
  • gítar
  • bassa
  • trommur
  • hljómborð
  • þverflautu
  • saxófón
  • rafgítar
  • Fiðla
  • Selló

Tónfræðinám við Tónlistarskóla Árbæjar nefnist Tónmenntasmiðja og samanstendur af tónsmíðum, tónfræði, tónlistarsögu, hljóðfærafræði og tónheyrn. Öll kennsla fer fram í fullkomnu margmiðlunarumhverfi þar sem er hvatt til frumkvæðis og sköpunar nemenda.

Samspilshópar- minni og stærri samspilshópar þar sem hin félagslega hlið tónlistariðkunar er ræktuð. Samleikur og hlustun í mörgum mismunandi hópum s.s. þverflautusamspil, píanósamspil, gítarsamspil ofl.

Tónleikar og tónfundir. Nokkrir minni tónfundir er haldnir og fara þeir fram í Fylkishöll og Ingunnarskóla. Stærri tónleikar s.s. jóla- og vortónleikar eru haldnir í Árbæjarkirkju.
Allt nám í hljóðfæragreinum miðast við almenna námsskrá og eru þreytt stigspróf við skólann. Þeir nemendur sem ekki taka stigspróf taka vorpróf. Verkefni og próf eru haldin í aukagreinum.

Heilt nám: Einkatímar 2svar í viku (2x25 mín.) Aukagreinar (Tónfræði, tónheyrn, tónlistarsaga, samspil) 1sinni til 2svar í viku. Aukagreinar (nema samspil) getur nemandi valið um að mæta í tíma í skólanum eða stunda námið á netinu. Nemandi hefur þar aðgang að sérhönnuðu vefkennsluefni Tónlistarskóla Árbæjar sem tengist getustigi og hljóðfæranámi hans. Eftir ákveðna áfanga þreytir nemandi próf í tónfræðigreinum sem eru í samræmi við aðalnámskrá. Valið er í samspil með tilliti til getu nemanda.

Hálft nám: Einkatímar 1sinni í viku (30 mín) aukagreinar 1sinni í viku (Tónfræði, tónheyrn, tónlistarsaga, samspil.) Nemandi getur einnig valið vefstudda tónfræðikennslu. Tilvalið fyrir nemendur og forráðamenn þar sem verið er að prófa tónlistarnám, þ.e. hvort það henti nemandanum.

Hvernig sæki ég um?
Allar umsóknir þurfa að fara um Rafræna Reykjavík sem er þjónustugátt fyrir borgarbúa á netinu. Rafræna Reykjavík má nálgast á veffanginu www.rvk.is.
Einnig er æskilegt að senda umsókn í tölvupósti á tonarb@heimsnet.is eða hafa samband símleiðis.

Hvað kostar námið yfir veturinn?
Ekki er enn komin gjaldskrá fyrir veturinn 2006-2007 en skólagjöldin voru fyrir veturinn 2005-2006 eftirfarandi:

· Heilt nám: 75.000 kr.
· Hálft nám: 43.000 kr.

Ganga þarf frá greiðslu skólagjalda fyrir 10.september 2006 vegna skólaársins 2006-2007