Nýtt vefsvæði 3.12.2001,
Nú er vinnu við nýja vefsvæðið lokið. Hér er hægt að nálgast ýmsar hagnýtar upplýsingar svo sem lista yfir tónsmíðar Torfa, útgefnar plötur og grip og texta svo e-ð sé nefnt.
Reynir Þór Hübner sá um hönnun og vefun, hægt er að senda honum beint spurningar eða ábendingar um brotna linka og það sem laga þarf í tölvupósti.
Ef þú hefur óskir eða ábendingar um hvernig megi stækka eða breyta þessum vef, er tilvalið að senda Torfa skeyti
Í draumi sérhvers manns
Lag og ljóð hefur nú gefið út hljómplötu Torfa, "Í draumi sérhvers manns".
Hér er að finna 18 lög eftir Torfa Ólafsson frá árunum 1980-2000 við ljóð ýmissa skálda, í flutningi margra okkar bestu flytjenda. Eiguleg plata með mörgum þekktum lögum, t.d. Systkinin (Pálmi Gunnars), Þjóðin og ég (Helgi Björns), Í musterinu (Bergþór Pálsson), Í draumi sérhvers manns (Eiríkur Hauksson), Jól (Helga Möller) o.fl.
|