|
 |
Ferill
Menntun
2000-2001 MA próf í Almennri bókmenntafræði
við Háskóla Íslands
1992-1997 Framhaldssnám við Trinity College
Dublin
1988-1991 BA próf í Almennri bókmenntafræði
við Háskóla Íslands
MA ritgerðin ber heitið: Images of Open
Bodies and the Writings of Clive Barker: In the
Context of Late Twentieth-Century Horror Fiction.
Framhaldsnámið í Trinity College
og við HÍ var rannsóknarnám.
Í rannsóknum mínum skoða
ég myndmál mannslíkamans í
nútímahrollvekjum, með áherslu
á kynjafræði. Þrátt
fyrir að aðferðafræði bókmenntafræðinnar
sé miðlæg, þá hef
ég einnig lagt áherslu á menningarfræði
og almennar athuganir á afþreyingar-
eða dægurmenningu samtímans.
Starfsreynsla
Frá hausti 2000 hef ég verið í
hlutastarfi sem deildarbókavörður
hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur,
Aðalsafni. Þar vinn ég meðal
annars við Bókmenntavef Borgarbókasafnsins
og hef umsjón með myndasögudeild,
auk annarra almennra bókasafnsstarfa.
Veturinn 2002-2003 er ég kennari við
Listaháskóla Íslands og kenni
þar námskeiðin Listir og
menning í Kennaradeild, Kvikmyndalestur,
Sjónmenning samtímans,
Myndun líkamans í Myndlistadeild
og Myndlestur og Myndasögur
í Hönnunar og arkitektúrdeild.
Stundakennsla við Háskóla
Íslands frá 1996-2002:
Icelandic literature, history and culture
frá 1996-2000, Íslenska fyrir erlenda
nemendur.
Afþreyingarmenning, 1997, Almenn
bókmenntafræði, Kynjafræði.
Hluta úr Kenningar í Kynjafræðum,
1997-2000, Kynjafræði.
Enskar bókmenntir II: Jane Austen,
1998, Almenn bókmenntafræði, Kynjafræði.
Afþreyingarmenning og kynferði,
1998, Mannfræði/Fjölmiðlafræði/Kynjafræði.
Gerfimaðurinn, vélveran og önnur
ó-menni, 1999, Enska.
Hetjuímyndin í bókmenntum
og kvikmyndum, 1999, Almenn bókmenntafræði.
Hrollvekjur, 2000, Almenn bókmenntafræði.
Klassískar bókmenntir og nútíma
kvikmyndir, 2000, Enska.
Hluti úr Menningarfræði,
2000, Almenn bókmenntafræði.
Jane Austen 2002, Almenn bókmenntafræði.
Helmingurinn af Menningarfræði
2002, Almenn bókmenntafræði.
Utan þessa stakir fyrirlestrar í ýmsum
námskeiðum í HÍ:
Skrímslamæður, fyrirlestur
í námsskeiðinu Móðurhlutverkið,
kennari Annadís Gréta Rúdólfsdóttir,
1998.
X-Files, fyrirlestur í námsskeiðinu
Samtímabókmenntir, kennari
Ástráður Eysteinsson, 1998.
Kyn og kynveran og Kyn og klám,
fyrirlestrar í námsskeiðinu Inngangur
að Kynjafræði, kennari Annadís
Gréta Rúdólfsdóttir,
1998, endurtekið fyrir Inngang að
Kynjafræði, kennari Þorgerður
Einarsdóttir, 1999 og Kyn og klám
endurtekið fyrir Kynjafræði
í Nútímafræðum, kennari
Þorgerður Einarsdóttir, 2001.
Nútíma-víkingasögur,
tveir fyrirlestrar, í námskeiðinu
Konur í miðaldatextum, kennari
Helga Kress, 2001.
Tim Burton, tveir fyrirlestrar og Orlando,
tveir fyrirlestrar, í námskeiðinu
Sögur og kvikmyndir, kennari Ástráður
Eysteinsson, 2001.
Fyrirlestrar í öðrum
skólum
Fyrirlestur um vampýrur og gotneskar hrollvekjur
við Trinity College Dublin, 1993 og 1994, endurtekinn
í University of Edinburgh, 1995.
Fyrirlestur um myndasögur í námskeiði
um Lífsleikni í Menntaskólanum
við Sund, 2000.
Fyrirlestur um tæknimenningum í námskeiði
um Heimspeki í Verzlunarskóla
Íslands, 2001.
Fyrirlestur um ímynd Íslands á
námskeiðinu Hugmyndin um Ísland,
kennt við Hólaskóla 2001.
Fyrirlestur um framandleika á námskeiðinu
Ímyndir og framandleiki, kennt
við Listaháskóla Íslands,
2001.
Fyrirlestur um Jane Austen og skáldsöguna
Hroka og hleypidóma í heimsbókmenntaáfanga,
kenndur í Borgarholtskóla, 2002.
Fyrirlestur um ímynd Íslands á
námskeiðinu Menningartengd ferðaþjónusta,
kennt við Hólaskóla og Háskóla
Íslands 2002.
Einnig hef ég haldið nokkur námskeið
um afþreyingarmenningu og kvikmyndir hjá
Námsflokkum Reykjavíkur og Endurmenntunarstofnun.
Aðrir fyrirlestrar
Um hrollvekjur og vampýrur í Norræna
sumarháskólanum, 1995.
Um hrollvekjur fyrir Rannsóknarstofu í
Kvennafræðum, 1996.
Um sjónræna menningu, fyrir Rannsóknarstofu
í Kvennafræðum, 2000.
Um íslenskar bókmenntir og tengsl
þeirra við þjóðsögur,
á sumarnámskeiði samtaka móðurmálskennara,
1996.
Um íslenskar bókmenntir síðasta
árs á sumarnámskeiði samtaka
móðurmálskennara, 1999.
Um vampýrur fyrir nemendur Menntaskólans
í Reykjavík, 1997.
Um vampýrur fyrir Félag íslenskra
fræða, 1999.
Um Fantasíur, íslenskar bókmenntir,
vampýrur, kvikmyndaaðlaganir, vísindaskáldsögur
og fantasíur, fyrir starfsfólk Borgarbókasafna
Reykjavíkur, 1998, 1999, 2001, 2002.
Um hryllingsmyndir á Hugvísindaþingi
HÍ, 1999.
Um íslenskar kvikmyndir fyrir alþjóðaskrifstofu
HÍ, 2000, endurtekinn fyrir erlenda skiptinema,
2000.
Um borgarmenningu í Opnum háskóla,
2000.
Um eyjur í íslenskum ljóðum
á ljóðahátíð
í Son í Noregi, 2000.
Um myndbönd Bjarkar á málþingi
um Björk í samvinnu við Menningarborgina
Reykjavík, 2000.
Um sjónræna menningu fyrir Félag
myndmenntakennara, 2000, endurtekið fyrir kennara
í Selásskóla, 2000.
Um tengsl leikhúss og hryllings á
málþingi í tengslum við
leiksýninguna Öndvegiskonur, í
Borgarleikhúsinu, 2001.
Um skáldsöguna Augu þín
sáu mig eftir Sjón á ráðstefnu
um skáldsögur, í HÍ, 2001.
Um útópíur og sæborgir
á málþingi Hugvísindastofnunar,
í HÍ, 2002.
Um skrif um skrif kvenna á bókmenntakvöldi
í umsjón Bókasafns Suðurnesja,
Keflavík 2002.
Um myndasögur á málþingi
um barnamenningu, haldið í menningarmiðstöðinni
Gerðubergi, 2002.
Um kvenímyndir á námstefnunni
Hamhleypur, haldin á vegum Endurmenntunarstofnunar
HÍ, 19. júní 2002.
Styttri erindi
Á málþingi gagnrýnenda,
1998.
Á málþingi í tengslum
við sýninguna Flögð og fögur
skinn á Listahátíð, 1998.
Á málþingi í tengslum
við Orðið tónlist, hátíð
talaðrar tónlistar, á menningarborgarárinu
2000.
Á kvöldskemmtun hjá félagi
Zonta, 1999, fyrir ReykjavíkurAkademíuna,
1999, Bókasambandið, 2000, Félag
áhugamanna um heimspeki, 2001, Soroptimista,
2002.
Önnur störf
Ég sit í ritnefnd vefritsins Kistunnar,
www.kistan.is.
Ég sit í dómnefnd fyrir hönd
Íslands um Glerlykilinn sem veittur
er fyrir bestu norrænu glæpasöguna.
Ég var ritstjóri (með Davíð
Ólafssyni) að tónleikaskránni
Orðið tónlist, Smekkleysa, Reykjavík
2000.
Ég var í ritnefnd bókarinnar
Flögð og fögur skinn (ritstj. Jón
Proppé), art.is, Reykjavík, 1998,
og sat í ritnefnd ritraðarinnar Atvik,
sem gefin er út af Bjarti og ReykjavíkurAkademíunni
1999-2001.
Ég sat í úthlutunarnefnd Kvikmyndasjóðs
1998-1999 og 1999-2000.
Ég var kvikmyndagagnrýnandi á
DV 1997-1999, fjölmiðlagagnrýnandi
í þættinum Mósaík
í Sjónvarpinu (RÚV), 1998-1999,
bókmenntagagnrýnandi Kastljóssins
2000 og 2001 og bókmenntagagnrýnandi
og menningar- og kvikmyndarýnir í
þættinum Víðsjá,
á Rás 1 Ríkisútvarpsins
frá 1997 - 2001.
Ég er fræðikona í ReykjavíkurAkademíunni,
félagi sjálfstætt starfandi
fræðifólks, félagi í
Hagþenki og einnig í Rithöfundasambandi
Íslands. Ég hef birt ljóð
og smásögur í ýmsum íslenskum
tímaritum og danska ritinu Hvedekorn og lesið
eigin verk í útvarpi og sjónvarpi.
Ég hef gefið út tvær bækur
á eigin vegum, með ljóðum
og prósa.
|
|
|