Ljóð

HongKong 2000

höfuðáttirnar þrjár eru ekki nema tvær: austur. þeim má raða eftir eftirfarandi flokkunarkerfi:
a) skýjakljúfar sem eru byggðir á bambus
b) skýjakljúfar sem vaxa inni í bambusneti
c) skýjakljúfar sem eru með njósnagötum fyrir dreka
d) skýjakljúfar sem eru ekki lengur til
e) voru aldrei til
f) en eru fjarlægur möguleiki í draumi bambusstilka
g) svo má hugsa sér skýjakljúfa sem liggja láréttir
h) skýjakljúfa sem kljúfa ekki ský
i) skýjakljúfa sem kljúfa fjöll
j) skýjakljúfa sem tengja höfuðáttirnar þrjár: austur og vestur
k) skýjakljúfa sem eru holir að innan og standa á fjórum fótum eins og geimskip
l) skýjakljúfa sem hýsa fólk
m) og skýjakljúfa sem geyma dreka
n) ekki má heldur gleyma þeim fjölmörgu smáhýsum, kofum og tjöldum sem hvergi finnast inni á milli skýjakljúfanna
o) nema í mesta lagi má sjá sölutjöld á markaðsdögum
p) sem eru alla daga
q) og selja dreka
r) drekum
s) í markaðsþorpinu stanley er svæði sem er ótrúlega laust við skýjakljúfa
t) en þeir eru enn í fjötrum bambusneta og rísa skjótt
u) þar má hitta úngan breta sem stundar sjóbretti (björk-country sagði hann um ísland)
v) og hræðist ekki hákarlana sem sveima utan varnarneta
x) ég ráðlagði honum að fara utar
y) þarsem meiri líkur væru á hákörlum
z) sem kljúfa sjóinn með uggum.
þ) út um gluggann okkar á elleftu hæð sáum við yfir auðan og dáinn flugvöll
æ) ég tók það sem tákn um að við kæmumst aldrei burt
ö) það reyndist óskhyggja

úd
Bjarnarstíg 6101 Reykjavík GSM 8495259 varulfur@centrum.is